Veturinn er að undirbúa komu sína og stór hluti Vestfirðinga fer að óska eftir snjó til að geta skipt út gönguskónum fyrir skíðaskó.
Við hverju má búast?
Í október getur veðrið verið allskonar, við getum fengið sólríka hlýja daga en það gæti farið að snjóa á morgun. Nauðsynlegt er að vera vel búin til að geta nýtt þennan tíma til að ferðast og kanna Vestfirðina.
Hverju skal pakka
- Vatnsheldar yfirhafnir
- Ullarfötin
- Góðir skór
- Húfa, vettlingar og trefill
- Hlýjir sokkar
- Myndavélin
- Sólgleraugu
- Föðurlandið
- Sundföt og handklæði
- Góða skapið