Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Á Vestfjörðum má finna margskonar söfn og fræðasetur. Mörg þeirra eru nokkuð hefðbundin og má þar nefna bóka- lista- og minjasöfn, önnur eru óhefðbundnari og eru sem dæmi tileinkuð göldrum, skrímslum og ýmsu öðru forvitnilegu.

Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space
 Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space er vettvangur fyrir samtímalist og tilraunakennd verkefni sem unnin eru þvert á listgreinar. Starfsemi gallerísins var gangsett árið 2013 í húsnæði gamla Slunkaríkis af Elísabetu Gunnarsdóttur og Gunnari Jónssyni myndlistarmanni. Starfsemi gallerísins fer fram í náinni samvinnu við alþjóðlegar gestavinnustofur ArtsIceland. ArtsIceland og Úthverfa / Outvert Art Space leggja áherslu á að greiða götu listafólks og sýniningarstjóra og gera þeimkleift að framkvæma verkefni sem geta skipt máli og haft afgerandi menningarleg áhrif.  Opnunartímar: Fimmtudaga – laugardaga 16:00 - 18:00 og eftir samkomulagi.   Starfsemi Gallerís Úthverfu/Outvert Art Space nýtur styrkja úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða og frá Ísafjarðarbæ.  
Hótel Laugarhóll
AÐSTAÐA Hótel Laugarhóll er heimilislegt, sveitahótel í gróðursælum dal á Ströndum, miðja vegu milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Boðið er upp á gistingu í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum, með eða án sér baðs. Einnig er tekið er á móti hópum, allt að 40 manns í uppbúin rúm. Á Laugarhóli er að finna notalega setustofu með nettengingu, veitingastað, íþróttasal og gallerí, sundlaug og heitan pott. Skammt frá hótelinu er tjaldsvæði með rennandi vatni og salernum.  Tjaldsvæðið er opið frá 1. júní til 1. september.   Utan háannatíma hentar staðurinn einstaklega vel til funda-, námskeiða- og ráðstefnuhalds og ekki síður sem æfingabúðir fyrir kóra, leik- og íþróttahópa, björgunarsveitir eða gönguskíðagarpa,     AFÞREYING Við hótelið stendur Gvendarlaug hins góða, ylvolg sundlaug, með náttúrulegu heitu vatni (32°C) og náttúruleg heit uppspretta (42°C), vinsæll viðkomustaður hjá lúnum ferðalöngum. Í næsta nágrenni eru fjölbreyttar og fallegar gönguleiðir, silungsveiði, hestaleiga, sjóstangveiði og lundaskoðun, ósnert og víða stórbrotin náttúra og ævintýralegar rekafjörur sem eru eitt helsta tákn Strandasýslu.   VEITINGASTAÐUR Boðið er uppá veitingar í björtum og notalegum borðsal með útsýni yfir sveitina. Þar má gæða sér á bragðgóðum, heimilislegum mat úr héraði í bland við framandi rétti. Á boðstólum er að jafnaði ferskt sjávarfang, heimalagaðar súpur og nýbakað brauð, ásamt grænu salati og kryddjurtum úr garðinum, að ógleymdum girnilegum eftirréttum.   KOTBÝLI KUKLARANS Strandir hafa löngum verið kenndar við galdra og í Bjarnarfirði bjó Svanur galdramaður á Svanshóli sem getið er í upphafskafla Njálu. Kotbýli kuklarans er annar áfangi Galdrasafnsins á Hólmavík og stendur við hlið Gvendarlaugar. Það sýnir vel þær aðstæður sem almúgafólk á Ströndum bjó við á tímum galdrafársins og fátæklegur aðbúnaðurinn útskýrir ef til vill þörf þess til að sækja sér styrk í kukl.   GVENDARLAUG HINS GÓÐA Sundlaugin á sér merka sögu en hún var byggð á fimmta áratug síðustu aldar með sameiginlegu átaki bænda úr hreppnum. Nýleg sundskýli eru við laugina og í anddyri þeirra er sýning sem greinir í máli og myndum frá byggingu laugarinnar.   GVENDARLAUG HIN FORNA Skammt ofan við sundskýlin er Gvendarlaug hin forna, náttúruleg heit uppspretta, blessuð í byrjun 13. aldar af Guðmundi góða fyrrum Hólabiskupi. Hún er talin búa yfir lækningamætti og er nú friðuð og í umsjá Þjóðminjasafns Íslands.   STAÐSETNING Frá Reykjavík er rúmur þriggja stunda akstur (258 km) að Laugarhóli, gegnum Borgarnes og Búðardal til Hólmavíkur. Þaðan liggur leiðin fyrir botn Steingrímsfjarðar og yfir Bjarnarfjarðarhálsinn. Hótel Laugarhóll er við veg nr. 643.
Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum
Báta- og Hlunnindasýningin er gluggi að skemmtilegum heimi fugla, báta og náttúrunytja Breiðafjarðar.  Sýningin er helguð gjöfum náttúrunnar við Breiðafjörð og nýtingu þeirra, einkum á fyrri tíð en að hluta allt fram á þennan dag. Fuglarnir gáfu egg og kjöt í matinn og æðarfuglinn gaf verðmætan dún í sængur og kodda. Selurinn gaf kjöt og spik og skinnið var notað til klæðagerðar. Meðal annars fá gestir að kynnast æðarfuglinum á sérstakan hátt og fræðast um gömlu súðbyrðingana með breiðfirska laginu. Á þessari lifandi sýningu er hægt að sjá stuttar og lengri heimildamyndir um lífið í Breiðafjarðareyjum, sem teknar voru um miðbik síðustu aldar. Í sama húsi er upplýsingamiðstöð ferðamannsins. Opið frá 1. júní til 30. ágúst frá 11:00-18:00 og eftir samkomulagi að vetri til.
Hnjótur - Minjasafn Egils Ólafssonar
Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti Örlygshöfn varðveitir einstætt safn gamalla muna frá sunnanverðum Vestfjörðum sem veita okkur innsýn í sögu sjósóknar, landbúnaðar og daglegs lífs. Þar er einnig að finna sýningu um björgunarafrekið við Látrabjarg árið 1947 og hattinn hans Gísla á Uppsölum. Egill Ólafsson var fæddur og uppalinn á Hnjóti og byrjaði ungur að safna munum. Með áhuga sínum og framsýni varð til þetta merka minjasafn sem Egill og kona hans Ragnheiður Magnúsdóttir byggðu upp og gáfu sveitafélögunum í Vestur-Barðastrandarsýslu. Í safninu er kaffitería, minjagripaverslun og svæðisupplýsingamiðstöð. Safnið er opið frá kl. 10-18 frá 1. maí- 30. september. Hægt er að hafa samband ef áhugi er að heimsækja safnið utan fasts opnunartíma (museum@hnjotur.is eða síma 456-1511).
Skrímslasetrið
Skrímslasögur hafa fylgt íslensku þjóðinni í gegnum aldirnar og til er fjöldi skráðra heimilda um skrímsli víðsvegar um landið. Þeim hefur nú verið fundinn verður samastaður í Skrímslasetrinu á Bíldudal við Arnarfjörð sem er sagður einn mesti skrímslastaður landsins. 
Gamla bókabúðin Flateyri
Gamla Bókabúðin á Flateyri er elsta upprunalega verslun Íslands. Fjölskyldufyrirtæki í fjórar kynslóðir síðan 1914. Verslunin sérhæfir sig í gæða vörum og bókum frá Vestfjörðum í bland við heimsþekkt vörumerki frá fyrirtækjum sem hafa starfað í lengur en 100 ár.  Samhliða versluninni er hægt að skoða íbúð kaupmannshjónanna sem hefur verið varðveitt í óbreyttri mynd frá því að þau féllu frá. Þá er einnig hægt að gista á efri hæð hússins, þar sem svefnherbergi Bókabúðarfjölskyldunnar eru. HeimasíðaBooking 
Gamla smiðjan Bíldudal
Gamla smiðjan er ein elsta áþreifanlega heimildin um atvinnusögu Bíldudals, en Pétur Thorsteinsson lét reisa smiðjuna um árið 1895 og útbjó með öllum nýjustu tækjum sem fáanleg voru á þeim tíma.  Smiðjan gegndi mikilvægu hlutverki í þjónustu við báta og útgerð á staðnum og var rekin í sama húsnæði í yfir 100 ár. 
Sjónminjasafnið Ósvör
Sjóminjasafnið Ósvör samanstendur af tvöfaldri 19. aldar verbúð, salthúsi, fiskreit og þurrkhjalli. Á meðal sýningagripa er sexæringurinn Ölver sem gefur góða mynd af þeim skipum sem notuð voru til fiskveiða fyrr á öldum. Í safninu eru einnig til sýnis veiðarfæri og ýmis tæki og tól sem notuð voru við veiðar og fiskverkun fyrr á öldum. Safnvörður tekur á móti gestum íklæddur skinnklæðum líkum þeim er íslenskir sjómenn klæddust áður fyrr og lýsir því sem fyrir augu ber.  Sumar 2023: 10. júní-20. ágúst, opið alla daga kl. 10-16 Aðrir tímar eftir samkomulagi Vetraropnun eftir samkomulagi Gjaldskrá: Börn 16 ára og yngri………………………………........…...frítt  Fullorðnir……………………………………………………………1.200 kr.  67 ára og eldri………………………………………………… 1.100 kr. 
Listasafn Samúels í Selárdal
 Samúel Jónsson (1884-1969) hefur verið nefndur "listamaðurinn með barnshjartað". Þegar hann fékk ellilífeyri byggði hann listasafn og kirkju, gerði líkön af fjarlægum merkisbyggingum og málaði listaverk í Selárdal, án þess að hafa notið nokkurrar tilsagnar í myndlist. Að Brautarholti í Selárdal bjó hann til styttur af selum, ljónum, sæhesti, önd með unga sína á bakinu og af Leifi heppna. Ekki nóg með það, heldur reisti hann einn síns liðs heila safnbyggingu yfir verk sín auk kirkju sem hann ætlaði að varðveita altaristöflu er hann hafði málað og sem sóknarkirkjan hafði hafnað. Félag um listasafn Samúels hefur undanfarna tvo áratugi gert við höggmyndir og byggingar Samúels og endurgert íbúðarhús hans að Brautarholti. Safnið er opið gestum yfir sumartímann og allir velkomnir í kaffi í hús Samúels. 
Galdrasýning á Ströndum
Galdrasafnið opnaði árið 2000 á Hólmavík og hefur síðan verið mjög vinsæll viðkomustaður meðal ferðafólks, enda er sýningin mjög vel heppnuð og mikið til hennar vandað. Á sýningunni er fjallað um íslensk galdramál og þjóðtrú tengdri viðfangsefninu. Þar kynnast gestir sérstökum galdramálum og fólkinu sem kom við sögu. Einnig er m.a. hægt að kynna sér hvernig vekja skal upp drauga eða kveða þá niður, koma sér upp nábrókum og gera sig ósýnilegan. Sumaropnun 15. maí - 30. september: Daglega10:00 - 18:00Vetraropnun 1. október- 14. maí: Daglega 12:00-18:00
Sauðfjársetur á Ströndum
Sauðfjársetur á Ströndum hefur verið starfandi frá árinu 2002 í félagsheimilinu Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum. Sauðfjársetrið er safn sem tekur á móti fjölda ferðamanna á ári hverju, auk þess sem íbúar á Ströndum koma margir margsinnis í heimsókn á hverju ári á viðburði eða í veislur. Sauðfjársetrið vinnur auk þess að margvíslegum menningarverkefnum. Jafnan eru uppi 4 sögu- eða listsýningar á Sauðfjársetrinu í einu. Fastasýning safnsins heitir Sauðfé og sveitafólk á Ströndum. Síðan eru hverju sinni uppi þrjár tímabundnar sérsýningar sem standayfirleitt í 1-2 ár.  Í Sævangi er einnig starfrækt kaffistofan Kaffi Kind þar er í boði heimabakað bakkelsi, súpa, ís frá Erpsstöðum og fleira góðgæti, í Sauðfjársetrinu er einnig lítil handverks- og minjagripabúð.  Safnið er staðsett 12 km. sunnan Hólmavíkur Opnunartími 1. júní - 31. ágúst: Virkir dagar: 10:00-18:00 Laugardagar: 10:00-18:00 Sunnudagar: 10:00-18:00Opið eftir samkomulagi á veturna.
Byggðasafn Vestfjarða, sjóminjasafn
Byggðasafn Vestfjarða stendur fyrir og kemur að sýningum á hverju ári. Safnið hefur í áranna rás verið í samstarfi við ýmsa aðila, einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki með uppsetningu og ráðgjöf.  Opnunartími:15. maí - 31. ágúst - kl. 10:00-17:001. sept. - 15. sept. - kl. 11:00- 15:00 Önnur opnun eftir samkomulagi Almennt verð 1.600 kr.Hópar og ellilífeyrisþegar 1.200 kr.
Dalbær / Snjáfjallasetur
Sýningar um Drangajökul og horfna byggð í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum hinum fornu, um tónskáldið Sigvalda Kaldalóns og um Spánverjavígin 1615.  Snjáfjallasetri er ætlað að safna, skrá og varðveita sagnir, kveðskap, myndir, muni og ýmis gögn sem tengjast sögu byggðar í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum og standa að sýningahaldi, útgáfustarfsemi, vefgagnasafni og ýmsum viðburðum. Í Dalbæ er einnig rekin ferðaþjónusta, sjá hér .
Melrakkasetur Íslands
Melrakkasetur Íslands er fræðasetur sem helgað er íslenska melrakkanum sem er af tegundinni Vulpes lagopex og er eina upprunalega landspendýrið á Íslandi. Melrakkasetur Íslands ehf. var stofnað í Súðavík 15. september 2007 og meðal stofnfélaga eru einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög. þessir aðilar eiga það sameiginlegt að hafa áhuga á íslensku tófunni og öllu sem henni viðkemur, svo og náttúrulífs- og sögutengdri ferðaþjónustu. Langtímamarkmið með stofnun setursins eru þau að safna saman á einn stað allri þekkingu, efni og hlutum sem tengjast melrakkanum í fortíð og nútíð. Að setja upp sýningu fyrir ferðamenn þar sem mun verða á boðstólnum fræðandi efni í máli og myndum um refi í náttúrunni, hérlendis sem erlendis, refarækt og refaveiðar. Ennfremur að stuðla að og taka þátt í rannsóknum á líffræði tegundarinnar og þróun sjálfbærrar náttúrulífs-ferðamennsku. Opið: Maí: 10:00-16:00 Júní - Júlí: 09:00-18:00 September: 10:00-16:00 01. október - 14. maí:  eftir samkomulagi  

Aðrir (8)

Staðarkirkja Reykjanes 380 Reykhólahreppur 530-2200
Grund - Forndráttavélar til sýnis Grund 380 Reykhólahreppur 430-3200
Safnahúsið Ísafirði Eyrartún 400 Ísafjörður -
Litlibær Skötufjörður 420 Súðavík 695-5377 /
Melódíur minninganna - Jón Kr. Ólafsson Reynimelur / Tjarnarbraut 5 465 Bíldudalur 456-2186
Byggðasafn Vestfjarða - Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar Hafnarstræti 10 470 Þingeyri 456-3294
Safn Jóns Sigurðssonar Hrafnseyri, Arnarfjörður 471 Þingeyri 456-8260
Minja- og handverkshúsið Kört Árnes II, Trékyllisvík 524 Árneshreppur 841-2025