Jólamánuðurinn er mættur og jólaljósin farin að lýsa upp myrkrið. Þá er það stóra spurningin verða jólin rauð eða hvít?
Við hverju má búast?
Eins og við vitum er allra veðra von á íslenskum vetri og um að gera að vera vel undirbúinn. Veður og færð á vegum eru nauðsynlegar upplýsingar til að skoða og hafa á hreinu áður en haldið er í ferðalag.
Hverju skal pakka
- Vatnsheldar yfirhafnir
- Ullarfötin
- Góðir skór
- Húfa, vettlingar og trefill
- Hlýjir sokkar
- Myndavélin
- Sólgleraugu
- Föðurlandið
- Sundföt og handklæði
- Góða skapið