Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Tröll segja sögur

8. apríl kl. 16:30-17:30
Nokkur hress tröll hafa boðað komu sína á Bókasafnið til þess að lesa tröllasögur fyrir börn. Loksins þora þau að heimsækja okkur því nú eru bara hlerar fyrir gluggunum og þá er lítil hætta á að sólin skíni inn og þau breytist í stein...
Það verður svo sannarlega líf og fjör á Bókasafninu.
Viðburðurinn hentar vel börnum á yngsta stigi grunnskóla en börn á öllum aldri eru hjartanlega velkomin – ef þau þora!
-------------------------------
Tröllaheimsóknin er hluti af Púkanum – barnamenningarhátíð og er haldinn í samstarfi við Litla leikklúbbinn