Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Svipmyndir úr svítum í Hömrum

2. mars kl. 15:00

Flygladúóið Sóley heldur tónleika í Hömrum, Ísafirði á vegum Tónlistarfélags Ísafjarðar

Á tónleikum Flygladúósins Sóleyjar hljóma fjölbreyttar svítur fyrir tvo flygla úr ýmsum áttum, allt frá þekktum íslenskum þjóðlögum yfir í sjaldheyrðari tónlist.

Andrés Ramón: Svipmyndir annarra veruleika
Dmitri Shostakovich: Þættir úr svítu op. 6, fyrir tvö píanó
Edvard Grieg: Þættir úr svítum
Richard Simm: Íslensk svíta

Tónleikarnir verða um 80 mínútur með hléi.