Upplýsingar um verð
6900 kr.
Hugljúfir og einlægir jólatónleikar með söngkonunni og píanóleikaranum Guðrúnu Árnýju ásamt strengjum og Kvennakór Ísafjarðar.
Edinborgarhúsinu miðvikudaginn 18. desember kl. 20.
Tónleikar fyrir alla sem vilja brjóta upp hversdagsleikann, hlæja, njóta og hlusta á fallega tónlist. Allt á laufléttum nótum þar sem Guðrún hefur hvað mest gaman af því að spjalla og kynnast áhorfendum milli laga.