Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mósaík-hekl á Ísafirði

7. mars kl. 18:00-20:00

Upplýsingar um verð

8500 kr.

Langar þig til að læra að hekla mósaíkmunstur? Ég skal kenna þér það!

Mósaík munstur eru ótrúlega skemmtileg og einföld hekl munstur sem hægt er að nota í allskonar verkefni. Á námskeiðinu kenni ég ykkur grunninn og tæknina í mósaíkmunstur hekli og þið gerið prufu með Havana uppskriftinni minni. Námskeiðið er ætlað þeim sem kunna aðeins að hekla og henta því ekki algjörum byrjendum, þá er nóg að kunna bara grunninn: loftlykkjur, fastalykkjur og stuðla.

Ég heiti Tinna Þórudóttir Þorvaldar og er kennarinn. Ég hef heklað og stundað hannyrðir síðan ég man eftir mér, gefið út 3 heklbækur, þær Þóru, Maríu og Havana, og ritstýrt þeirri fjórðu, Heklfélaginu. Ég er þaulreynd í heklkennslu, hef haldið heklnámskeið sl. 15 ár og kennt mörg hundruðum nemenda handtökin.

Skráning og allar frekari upplýsingar hjá Tinnu á netfangið tinnahekl@gmail.com

Námskeiðið stendur í tvo tíma, frá kl. 17-19, föstudaginn 7. mars, og fer fram á kaffihúsinu Heimabyggð á Ísafirði.
Hámarks fjöldi þátttakenda er 12.

Námskeiðið kostar 8.500. og auk kennslu fáið þið uppskriftina að Havana teppinu á rafrænu formi, á ensku. Plús aðra uppskrift frá mér að eigin vali í lok námskeiðisins. Ef þú ert ekki vön/vanur að vinna með uppskriftir á ensku þá engar áhyggjur, því ég útskýri þetta allt á íslensku og við erum aðallega að vinna með munstur teikningu. ATH. ad þið þurfið að prenta uppskriftina út sjálf, ef þið viljið hafa hana á pappír, eða koma med hana í síma eda spjaldtölvu eftir hentugleika.

Þá þurfið þið að koma með garn í prufu, minnst 2 liti (best að hafa mikinn kontrast á litunum) og heklunál sem hæfir garninu. Það er hægt að nota hvaða garn sem er, bara einhverja afganga, en ég mæli með að það sé ekki of fíngert. Þá er einnig gott að hafa í huga að vera ekki með dökka liti.

Greiða þarf fullt námskeiðisgjald við skráningu til að staðfesta þáttöku. ATHUGIÐ að endurgreiðsla er ekki í boði ef kemur til forfalla af hálfu nemenda, en ykkur er þá velkomið að gefa einhverjum öðrum (vini eða ættingja til dæmis!) plássið ykkar ef þið viljið.

Ég hlakka til að sjá ykkur í heklinu!