Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Manga vinnustofa

26. október kl. 12:00-14:00

Upplýsingar um verð

Frítt

Hefur þú brennandi áhuga á Manga?

Atla Hrafney, myndasöguhöfundur og fyrrverandi formaður Íslenska Myndasögusamfélagsins, kemur til Ísafjarðar til að kenna manga gerð. Í vinnustofunni verður farið yfir hugmyndafræði, vinnubrögð og margt fleira sem tengist þessum spennandi menningarheim. Við hvetjum öll áhugasöm* til að skrá sig á bokasafn@isafjordur.is.

Nánari upplýsingar um verk Ötlu Hrafneyju má finna á atlathewriter.com.

*vinnustofan er ætluð ungmennum frá 12 ára aldri