Upplýsingar um verð
Þér og þínum er boðið að vera við opnun sögusýningar Kristínar Þorvaldsdóttur (1870 – 1944), föstudaginn 31. Janúar 2025, kl. 17:00 í sýningarsal Listasafns Ísafjarðar á 2. Hæð t.v. í Safnahúsinu við Eyrartún. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Kristín Þorvaldsdóttir fæddist á Ísafirði 14. janúar árið 1870. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Jónsson læknir og síðar útibússtjóri Landsbankans á Ísafirði og Þórunn Jónsdóttir frá Gilsbakka.
Kristín var vel menntaður myndlistarmaður og átti að baki lengri námstíma en aðrar konur í svipuðum sporum. Fjölskyldan var vel efnuð og fengu börnin bestu menntun sem völ var á og voru öll send til náms í Kaupmannahöfn. Hún virðist hafa búið yfir miklum hæfileikum og gæði verka hennar bera það með sér að hún hefur verið í góðri æfingu. Áhrif listaverka hennar voru hins vegar lítil þar sem þau voru aldrei sýnd opinberlega.
Það átti ekki fyrir Kristínu að liggja að verða fyrsta íslenska konan sem helgaði sig myndlist. Aðstæður hennar voru þó hinar ákjósanlegustu til þess hlutskiptis þar sem hún var ólofuð, bjó við rúman efnahag og var gædd góðum hæfileikum. Siðferðilegar skyldur og viðteknar venjur þess tíma höfðu þó meira að segja um ævistarf Kristínar. Hún tilheyrði þjóðfélagi sem ekki mat hæfileika kvenna að verðleikum og leit listiðkun öðrum augum en nú er gert.
Sérstakar þakkir:
Verkin á sýningunni eru öll í einkaeigu, bestu þakkir fyrir samstarfið: Árni Björnsson, Borghildur Þórisdóttir, Brynja Sif Björnsdóttir, Guðrún Yrsa Ómarsdóttir, Hulda Sigga Jeppesen, Kristín Ómarsdóttir og Ólöf Björnsdóttir.
Ljósmyndir koma úr ljósmyndasafninu Ísafirði og textinn á sýningunni er tekinn úr bókunum „Huldukonur í íslenskri myndlist“ eftir Hrafnhildi Schram, og „Aldamótakonur og íslensk listvakning“ eftir Dagnýju Heiðdal.
Kynningarmyndin er verk í eigu Borghildar Þórisdóttur og sýnir Neðstakaupstað á Ísafirði.
Aðgangur ókeypis
Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði
ENGLISH :
You are cordially invited to the opening of the historical exhibition of Kristín Þorvaldsdóttir (1870–1944), on Friday, January 31, 2025, at 17:00 in the exhibition hall of the Ísafjörður Art Museum on the 2nd floor, to the left, in the Cultural House by Eyrartún. Light refreshments will be served.
Kristín Þorvaldsdóttir was born in Ísafjörður on January 14th 1870. Her parents were Þorvaldur Jónsson, a doctor and later branch manager of Landsbanki in Ísafjörður, and Þórunn Jónsdóttir from Gilsbakki.
Kristín was a well-educated artist and had a longer period of formal education than many other women of her time. Her family was wealthy, and the children received the best education available, all of them being sent to study in Copenhagen. She had considerable talent and the quality of her works reflect the fact that she received solid training. However, the impact of her art was limited as her works were never displayed publicly.
It was not destined for Kristín to become the first Icelandic woman dedicated to visual arts. However, all circumstances were favorable for this, as she was unmarried, lived in relative comfort and had talent. Nevertheless, societal norms and conventions played a larger role in shaping her career, as she lived in a society that did not fully appreciate artistic abilities of women and viewed art differently than we do today.
Special thanks:
The works in the exhibition are all held in private collections, with special thanks for the collaboration: Árni Björnsson, Borghildur Þórisdóttir, Brynja Sif Björnsdóttir, Guðrún Yrsa Ómarsdóttir, Hulda Sigga Jeppesen, Kristín Ómarsdóttir, and Ólöf Björnsdóttir.
Photographs are sourced from the Ísafjörður Photography Collection, and the text in the exhibition is taken from the books “Huldukonur í íslenskri myndlist” by Hrafnhildur Schram, and “Aldamótakonur og íslensk listvakning” by Dagný Heiðdal.
The promotional photo is of a painting owned by Borghildar Þórisdóttir and shows the Neðstikaupstaður, Ísafjörður
Admission free
The exhibition is funded by the Icelandic Art Fund