Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Körfubolti: Góðgerðarleikur Vestra á móti Fjölni B

11. janúar kl. 15:30
Góðgerðarleikur körfuknattleiksdeildar Vestra laugardaginn 11. janúar 2025, kl. 16:30
Vestri – Fjölnir b, mfl. karla.
Góðgerðarleikur fyrir Steinunni Jónsdóttur fyrrum leikmann KFÍ fer fram laugardaginn næstkomandi þegar Vestri tekur á móti Fjölni í 2. deildinni.
Steinunn eða Steinka eins og hún er jafnan kölluð meðal vina og vandamanna, hefur þurft að kljást við eftirköst bílslyss sem hún lenti í fyrir um 15 árum síðan. Sökum þess hefur hún þurft á ýmsum krefjandi inngripum að halda, auk þess að fara í afar kostnaðarsama aðgerð erlendis sem eðli máls samkvæmt hefur reynt á fjárhagslega. Við í Vestra viljum reyna okkar besta við að aðstoða hana við að koma til móts við þann kostnað. Við vonumst því til að sjá sem allra flesta á leik mfl. Vestra gegn Fjölni b, laugardaginn 11. janúar kl. 16:30 og hvetjum alla sem vettlingi geta valdið til að mæta á leikinn sem/og hvetja vini og ættingja til að mæta einnig.
Aðgangseyrir er sem fyrr enginn, en öll frjáls framlög eru afar vel þegin enda munu þau öll renna í sjóð til hennar Steinku. Kaffi, vöfflur og dýrindis bakkelsi verður til sölu, en ágóði þeirrar sölu mun sömuleiðis renna í sama sjóð.
Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta, en vilja engu að síður veita málefninu lið, geta lagt beint inn á reikning Steinku sem er eftirfarandi: 0150-05-061466, kt. 060883-5139. Margt smátt gerir eitt stórt.
Lítil þrautabraut verður opnuð kl. 15:30 í salnum þar sem ungir sem aldnir geta reynt fyrir sér.
Sjáumst hress.