Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kolaport og Basar

23.-24. nóvember

Kolaport & Basar kvenfélagsins Hvatar í Félagsheimilinu í Hnífsdal - Laugardag og sunnudag 14:00 - 17:00

Ýmiskonar heimagert góðgæti verður til sölu
m.a. sérrísíld, rúgbrauð, smákökur og piparkökuhús.
Hið margrómaða hnallþóruborð verður á sínum stað.
Auk þess verður mikið af notuðum fatnaði, skóm, jólaskrauti og húsbúnaði sem selt verður á slikk.
Og samkvæmt venju verður hægt að tilla sér niður og kaupa nýbakaðar vöfflur og heitt súkkulaði á staðnum.
Allur ágóði rennur til góðgerðamála.
Allir velkomnir!