Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hekl fyrir byrjendur á bókasafninu

9. apríl kl. 17:00-19:00

Langar þig að læra undirstöðuatriði í hekli?

Við verðum með tveggja tíma námskeið fyrir BYRJENDUR á Bókasafninu Ísafirði miðvikudaginn 9. apríl. Farið verður í nokkur grunnatriði á borð við að halda á heklunál, ýmsar gerðir heklunála og grófleika á bandi. Heklaðar verða mismunandi keðjur til að sýna grunnlykkjurnar og heklum nokkrar dúllur.

Nokkur heklverkefni verða til sýnis sem gaman er að skoða til að fá innblástur.

Garn verður á staðnum en gott er að koma með heklunál, helst í stærð 2,5-3,5.

Námskeiðið er ókeypis. Til að áætla fjölda og tryggja pláss mælum við með að senda póst á bokasafn@isafjordur.is