Langanesviti í Arnarfirði
Langanesviti í Arnarfirði var byggður 1949.Hönnuður er Axel Sveinsson verkfræðingur. Vitinn er steinsteyptur ílangur ferhyrningur. Hann er 2,5 m breiður, 5 m langur og 4,8 m á hæð.
Gasbúnaður var í vitanum þar til 1993 en þá var hann rafvæddur með sólarorku.