Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Púkapodcast – Hlaðvarpsgerð fyrir ungmenni

March 31 at 17:00

Edinborgarhúsið stendur fyrir hlaðvarpsnámskeiði fyrir krakka á elsta stigi grunnskólans (8.-10. bekk) á barnamenningarhátíðinni Púkanum. Takmarkaður fjöldi plássa og nauðsynlegt að skrá þátttakendur.

Skráning hér:
https://form.jotform.com/250772357836062

Nemendur læra undirstöðuatriðin í útvarps- og hlaðvarpsframleiðslu. Á námskeiðinu kynnast þátttakendur ólíkum gerðum hlaðvarpa, viðtalstækni og handritsgerð, auk þess sem þeir fá hagnýta reynslu af upptökum og klippingu. Á námskeiðinu þróa þátttakendur sínar eigin hugmyndir og vinna að stuttu innslagi með aðstoð leiðbeinenda.

Námskeiðið skiptist í tvennt, dagana 31. mars og 1. apríl kl. 17:00 - 19:00 og svo 15. apríl 17:00-19:00. Þar á milli vinna krakkarnir sjálfstætt að handritsgerð og efnissöfnun.

Leiðbeinandi er Halla Ólafsdóttir sem starfaði sem fréttakona á Ísafirði fyrir fréttastofu RÚV á árunum 2015-2019. Síðan þá hefur hún verið sjálfstætt starfandi dagskrárgerðarkona og meðal annars sinnt fjölmörgum verkefnum fyrir dagskrá Rásar 1 og sjónvarps. Dæmi um útvarpsseríur sem Halla hefur gert eru Hyldýpi (2019), Ljósufjöll (2020), Leitin ( 2022) og Tungudalur (2024).