Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Opnun: Allt mögulegt

October 25 at 17:00

OPNUN: Allt mögulegt
Sigurður Atli Sigurðsson
25.10 2024 – 18.01 2025
Sýningarsalur Listasafns Ísafjarðar,
2. hæð t.v. Safnahúsinu við Eyrartún
Þér og þínum er boðið að vera við opnun sýningarinnar Allt mögulegt, föstudaginn 25. október 2024, kl. 17:00 í sýningarsal Listasafni Ísafjarðar á 2. Hæð t.v. í Safnahúsinu við Eyrartún. Sýningin er hluti af menningar- og listahátíðin Veturnóttum á Ísafirði sem fer fram dagana 24.-27. október. Boðið verður upp á léttar veitingar og verður listamaðurinn viðstaddur opnunina.
"Ég er mjög upptekinn af því hvernig litir og form birtast okkur í öllu sem við sjáum. Ég get ímyndað mér að ungabörn sjái heiminn á áhugaverðan hátt sem flæði af litum, formum og áferðum. Þegar við eldumst mótum við okkur hugmyndir um hvernig hlutir eigi að líta út. Fyrir þessa sýningu langaði mig að gera verk sem byggja á raunverulegum hlutum eins og þeir birtast okkur. Þetta eru þannig séð frekar ómerkilegir hlutir; byggingavörur, aukahlutir í raftæki, eldhúsáhöld o.s.frv. sem mynda símynstur. Frá vissum sjónarhornum geta þessir hversdagslegu aukahlutir leitt hugann í óravíddir."
Verk Sigurðar Atla, svo sem Frelsi og Sætaskipan, setja fram kunnugleg myndræn kerfi og bjóða áhorfendum að gera upp við sjálf sig hvað þau standi fyrir. Verkum Sigurðar hefur verið líkt við konkret ljóð; "Í þessum skilningi líkjast verk hans konkret ljóðum, í samtalinu milli stærða, hvernig svo litlar upplýsingar á blaði geti staðið fyrir rými, líkama eða hlut." (Joe Keys, Sena, sýningarskrá, 2024) Verkin eiga það sameiginlegt að vera formhrein og einföld og vinna með það sem mætti kalla grunneiginleika grafíkur; lagskiptingu og endurtekningu, þó að þau séu unnin í aðra miðla. Verkin á sýningunni eru unnin með UV-bleksprautuprenti og silkiþrykki í bland við olíumálningu og olíupastel. Þau standa á mörkum prentverks og málverks, raunveruleikans og hins ímyndaða.
--
Sigurður Atli Sigurðsson (f.1988) er þekktur fyrir formhrein verk sem skoða þau mynstur sem móta mannleg samskipti. Verk hans taka á sig form stórra myndaraða og innsetninga sem taka yfir sýningarrýmið. Á ferli sínum hefur Sigurður Atli unnið með ýmsar grafískar prentaðferðir og fengist við útgáfu bókverka. Árið 2015 stofnaði hann Prent & vini ásamt Leifi Ými, saman hafa þeir unnið með fjölda listamanna að prent- og bókverkum. Um svipað leyti hóf Sigurður Atli að kenna við Listaháskóla Íslands og sá um grafíkverkstæði skólans um nokkurra ára skeið. Sérþekking hans á þessu sviði hefur leitt hann til að halda sýningar og stýra sýningum víða um heim, nýlega á Museum of Contemporary Art Tokyo, Listasafninu á Akureyri og Listasafni Íslands.

Aðgangur ókeypis
Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði

Viðburður á Facebook