Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Lög frá Ísafirði: Útgáfuhóf

October 27 at 16:00

„Lög frá Ísafirði“ er bók sem kemur út í 27. október. Í bókinni eru laglínur, textar og hljómar að 37 lögum frá Ísafirði, eftir Ísfirðinga eða tengd Ísafirði eða nærsveitum nánum böndum. Öllum lögum fylgir stuttur inngangur auk þess sem bókina prýða ljósmyndir Hauks Sigurðssonar úr þessum tónlistarbæ.
Á útgáfuhófinu geta áhugasamir keypt eintak, bæði fyrir sig og í jólapakkann. Nokkrir höfundar munu einnig stíga á stokk og flytja lög sín, og mun það koma í ljós betur þegar nær dregur.
Viðburðurinn er hluti af Veturnóttum. Útgáfan var styrkt af nótnasjóði STEFs og samfélagssjóði Orkubús Vestfjarða.

Viðburður á Facebook