Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Körfubolti: Vestri — Uppsveitir

October 26 at 16:00

Næsti heimaleikur í deildarkeppni hjá meistaraflokki karla í körfuknattleik er laugardaginn 26. október kl. 16:00 á Torfnesi þegar strákarnir mæta Uppsveitum.

Ókeypis aðgangur.

Í tilefni af bleikum október ætlar barna- og unglingaráðs kkd. Vestra að opna kaffihús klukkan 15:00 þann 26.10 í íþróttarhúsinu á Torfnesi. Kaffihúsið verður opið til 17:00. Boðið verður upp á dýrindis kaffi ásamt vöfflum og meðlæti. Allur ágóði af kaffihúsinu mun renna til Krabbameinsfélagsins Sigurvonar. Einnig verður tekið við frjálsum framlögum. Hvetjum alla til að mæta og sýna stuðning við málefnið í verki.

Hvetjum öll til að mæta og styðja Vestra!